Stofna nýjan notanda í Sarpi

Breytt Thu, 28 Maí kl 11:59 AM

Hér er farið yfir hvernig nýr notandi er stofnaður í Sarpi og hvernig senda má viðkomandi upplýsingar í tölvupósti. Mælt er með að afrita notanda frá sama safni og breyta síðan persónuupplýsingum og aðgangi eftir þörfum.  Ef þörf er á aðstoð frá Zetcom er netfangið support@zetcom.com

Áður en þú byrjar

  • Athugaðu hvaða safn notandinn á að tilheyra.
  • Hafðu við höndina nafn, netfang og eftir atvikum kennitölu.
  • Einfaldast er að finna sambærilegan notanda sem þegar er til hjá sama safni og afrita hann.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Sarp og farðu í eininguna Notendur – Notendur.
  2. Notaðu leitina vinstra megin til að afmarka rétt safn. Sláðu inn * í leitinni til að fá upp alla notendur.
  3. Finndu starfsmann sem þegar er skráður hjá sama safni og er með sambærilegar heimildir.
  4. Veldu Afrita notanda. Hnappurinn er neðst, við hliðina á plús-takkanum.
  5. Breyttu persónuupplýsingumnýja notandans, til dæmis:
    • fornafni og eftirnafni
    • auðkenni notanda
    • netfangi
    • kennitölu, ef við á
    • lykilorði. Athugaðu reglur um lykilorð: það þarf að vera að minnsta kosti 12 stafir og innihalda bókstafi, tölustafi og tákn.
  6. Staðfestu að safn sé rétt skráð efst í hægra horninu.
  7. Farðu yfir heimildahópa og tryggðu að nýi notandinn sé með réttar aðgangsheimildir.
  8. Vistaðu notandann.

Góð regla: Afritaðu frekar notanda frá sama safni en að stofna notanda alveg frá grunni. Það minnkar líkur á að heimildir eða stillingar gleymist.

Atriði sem þarf sérstaklega að yfirfara

  • Er notandanafn einstakt og rétt skrifað? Gott er að nota notandanafn sem er sama og nafn viðkomandi eða hluti af því.
  • Er tölvupóstfang rétt?
  • Er notandinn tengdur réttu safni?
  • Ef kennitala er ekki skráð þarf að setja 0 í reitinn Kennitala, þar sem hann er skyldureitur.
  • Ef notandinn þarf að hafa aðgang að sérstökum einingum er best að afrita notanda sem er með sambærilegar heimildir.

Athugið

  • Athugaðu sérstaklega að gamalt netfang eða gamalt notandanafn hafi ekki setið eftir.

Senda upplýsingar til notanda

Þegar notandinn hefur verið stofnaður þarf að senda honum upplýsingar um aðgang. Hægt er að nota tilbúið svar í Freshdesk (Canned response) sem heitir Nýr notandi í Sarpi.

Sniðmát fyrir tölvupóst

Góðan dag [nafn],

Hér er aðgangurinn að Sarpi:

Slóð: https://mpicelandsarpur.zetcom.app/v#
Notandanafn: [notandanafn]
Lykilorð: [lykilorð]

Vinsamlega veldu íslensku áður en þú skráir þig inn. Kerfið er sjálfgefið á ensku í fyrsta skipti, en eftir að tungumál hefur verið valið helst sú stilling þar til henni er breytt.

Kennsluefni og leiðbeiningar fyrir Sarp má finna hér:
https://sarpur.freshdesk.com/support/solutions

Við mælum sérstaklega með að horfa á myndböndin.

Hafðu einnig í huga:

  • Passaðu upp á há- og lágstafi þegar þú skráir þig inn.
  • Bókamerktu slóðina til að finna hana fljótt síðar.
  • Ef þú gleymir lykilorði geturðu valið Gleymt lykilorð á innskráningarsíðunni.
  • Þú getur alltaf skráð þig inn með Ísland.is / rafrænum skilríkjum, svo lengi sem kennitalan þín er skráð í kerfinu.
  • Hakaðu aðeins við Muna eftir mér ef þú ert á einkatölvu.
  • Þú getur breytt lykilorðinu þínu eftir innskráningu undir Notendur → Notendastillingar.
  • Lykilorð þarf að vera að minnsta kosti 12 stafir og innihalda að minnsta kosti einn hástaf og eina tölu.
  • Námskeið á döfinni

Hægt er að senda verkbeiðnir á þjónustuvefnum eða með tölvupósti á sarpurhjalp@landskerfi.is.

Endilega hafðu samband ef spurningar vakna.

Gátlisti

  • Nýr notandi stofnaður eða afritaður frá réttum notanda.
  • Persónuupplýsingar uppfærðar.
  • Rétt safn valið.
  • Heimildir yfirfarnar.
  • Notanda sendur tölvupóstur með upplýsingum.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina