Ef notandi gleymir lykilorði sínu í Sarpi á hann sjálfur að óska eftir nýju lykilorði á innskráningarsíðu Sarps. Þetta er öruggasta og einfaldasta leiðin til að endurheimta aðgang.
Beindu notanda fyrst á innskráningarsíðu Sarps og láttu hann velja Gleymt lykilorð. Notandinn fær þá leiðbeiningar í tölvupósti um að setja nýtt lykilorð.

Innskráning með Ísland.is
Einnig er hægt að benda notanda á að skrá sig inn með Ísland.is, ef kennitala hans er skráð í Sarpi. Eftir innskráningu getur notandinn farið í Notendur → Notendaheimildir og valið sér nýtt lykilorð.
Athugið: Ef notandi getur ekki skráð sig inn með Ísland.is þarf að athuga hvort kennitala hans sé skráð á notandann í Sarpi.
Ef starfsfólk þarf að setja nýtt lykilorð
T.d. ef netfang notanda er rangt eða hann kemst ekki í tölvupóstinn sinn. Það er hægt að búa til nýtt lykilorð fyrir notanda í Sarpi í gegnum Notendur → Notendur. Þá þarf að finna viðkomandi notanda og skrá inn nýtt lykilorð fyrir hann. Athugaðu reglur um lykilorð: það þarf að vera að minnsta kosti 12 stafir og innihalda bókstafi, tölustafi og tákn.
Þessa leið ætti aðeins að nota þegar notandi getur ekki sjálfur endurstillt lykilorð. Almenna verklagið er að notandi bjargi sér sjálfur með Gleymt lykilorð eða innskráningu með Ísland.is.
Kennitala vantar á notanda
Ef kennitala notandans er ekki skráð í Sarpi er hægt að bæta henni við á notandaspjaldinu. Þegar kennitalan hefur verið skráð getur notandinn framvegis skráð sig inn með Ísland.is.
Gátlisti
- Benda notanda fyrst á Gleymt lykilorð á innskráningarsíðu Sarps.
- Athuga hvort notandi geti skráð sig inn með Ísland.is.
- Staðfesta að kennitala sé skráð á notandann, ef Ísland.is innskráning virkar ekki.
- Setja aðeins nýtt lykilorð handvirkt í Sarpi ef notandi getur ekki sjálfur endurstillt lykilorðið.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina