Ef innra kerfi Sarps er mjög hægt eða liggur niðri samkvæmt notanda er best að byrja á því að sannreyna stöðuna með því að skrá sig sjálf/ur inn í Sarp.
Ef innra kerfið liggur niðri
Ef þú kemst ekki inn í Sarp og vandinn virðist almennur þarf að senda póst á support@zetcom.com.
Settu Urgent system down í efnislínu póstsins.
Taka þarf skýrt fram í póstinum að um sé að ræða innra kerfi Sarps og lýsa stuttlega hvað gerist, til dæmis hvort innskráning virkar ekki, kerfið hleðst ekki eða villuskilaboð birtast.
Ef vandinn virðist aðeins eiga við einn notanda
Ef kerfið virkar hjá þér en ekki hjá viðkomandi notanda þarf fyrst að kanna hvort vandinn tengist aðgangi, innskráningu eða tæknilegu umhverfi notandans.
- Skoðaðu notendaheimildir viðkomandi í Sarpi.
- Biddu notandann að kanna hvort innskráning með island.is virki.
- Biddu notandann að athuga nettengingu.
- Biddu notandann að prófa annan vafra.
- Ef vandinn heldur áfram skaltu biðja notandann um skjámynd af villunni eða nánari lýsingu á því hvað gerist og senda á support@zetcom.com
Ef ytri vefurinn liggur niðri
Ef ytri vefurinn liggur niðri þarf að senda póst á support@zetcom.com.
Settu eMuseum system down í efnislínu póstsins.

Gátlisti áður en haft er samband við zetcom
- Er vandinn í innra kerfi Sarps eða á ytri vef?
- Er vandinn almennur eða bundinn við einn notanda?
- Hefur þú prófað að skrá þig inn sjálf/ur?
- Eru til villuskilaboð eða skjámynd?
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina