Efsta valmyndin

Breytt Thu, 10 Okt kl 9:34 AM

Sjá myndband neðst á síðunni.


EFNISYFIRLIT




Persónulegar notendastillingar



Með því að ýta á karlinn í efri valmyndinni er hægt að skipta um tungumál, breyta um aðgangsorð, skoða komandi uppfærslur í kerfinu þegar við á, skoða kökustillingar (cookies) stilla notendaviðmótið, og skrá sig út. 



  • Tungumál sem eru í boði eru enska, íslenska og pólska.


  • Þegar breytt er um lykilorð er mikilvægt er að velja löglegt lykilorð. Lykilorðið verður að vera 8 stafir og má ekki innhalda nafnið þitt eða einhverja einfalda runu eins og 1234. Gott er að hafa bæði tölustafi og bókstafi. Lykilorðið sem þú notar til þess að skrá þig inn í bókasafnskerfið er sama lykilorð og þú notar til þess að skrá þig inn á leitir.is. Ef þú breytir um lykilorð á leitir.is í sama safnakjarna og þú vinnur þá breytist lykilorðið þitt einnig í Gegni.


  • Undir Grunnstilling viðmóts er svo hægt að skoða komandi uppfærslur í kerfinu og prófa þær áður en þær eru keyrðar í gegn. Hægt er að kveikja og slökkva á uppfærslunni þangað til að hún er keyrð inn.


  • Sjá leiðbeiningar um kjörstillingar viðmóts hér



Verkefnalistinn

  


Í verkefnalistanum er hægt að sjá hvort að einhver verkefni bíða manns, svo sem frátektarbeiðni, endurnýjun á tímaritaáskrift, millisafnalánabeiðni og fleira. Verkefnalistinn er mikilvægasta tól bókasafnsins í kerfinu. Sjá leiðbeiningar um verkefnalistann hér


Mikilvægt er að festa verkefnalistann á forsíðuna svo að ekkert fari framhjá manni. Til þess að læra að festa verkefnalistann á forsíðuna skal skoða leiðbeiningar um Græjur.

 


 

Nýlegar einingar


 

Undir Nýlegar einingar“ er hægt að skoða færslur frá síðustu dögum sem þú hefur búið til, uppfært eða eytt út. 

    

Hér er hægt að velja færslu með því að smella á blýantinn og halda áfram að vinna með hana eða sjá hvers konar breytingar þú gerðir síðast. 




Miðstöð skýjaforrita



Í Miðstöð skýjaforrita koma upp forrit sem eru tiltæk í kerfinu. Undir Virk forrit“ eru þau forrit sem búið er að virkja á þessum aðgangi. Undir „Tiltæk forrit“ eru þau forrit sem hægt er að sækja og virkja. Einnig er hægt að leita að sérstöku forriti með því að smella á stækkunarglerið. 



Útprentun límmiða fer til dæmis fram í gegnum skýjaforritið SpineOMatic. Það þarf að setja útprentun límmiða sérstaklega upp í hverjum aðgangi. Hér eru nánari upplýsingar um kjalmiða uppsetningu.



Tilkynningar


 

Undir tilkynningar birtast tilkynningar frá kerfisframleiðandanum Ex libris. Til dæmis um nýjar uppfærslur í kerfinu.


 

Stillingar á efstu valmynd




Einnig er hægt að stilla valmyndartáknin með því að fara í þrípunktana efst í hægra horninu, velja „Sérsniða“ og færa táknin til. 


Með því að draga táknin niður er verið að velja að fela þau tákn þannig að þau birtast ekki í hægra horninu nema ef smellt er á þrípunktana. 

  

Þegar búið er að endurraða og fela táknin þarf að muna að smella á „Vista“. 








Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina