Nýlega þurfti að takmarka notkun á flýtiumsjón notenda vegna vandamála við tengingu gagna upp í Landskjarna.
Því þarf að nota ítarlega upplýsingasíðu notenda til þess að uppfæra samskiptaupplýsingar, svo sem heimilisfang, netfang og símanúmer notenda.
Hægt er að komast inn í ítarlega upplýsingasíðu lánþegans í gegnum flýtiumsjón notenda með því að smella á ítarlegar upplýsingar hægra megin á síðunni.
Flýtiumsjón notenda er hægt að nota til þess að skrá lánþega í notendahóp, laga upplýsingar um valin nöfn og skrá nýtt lykilorð fyrir lánþega á leitir.is.
Athugið að það þarf að muna að smella á „Uppfæra notanda“ hafi einhverjum upplýsingum verið breytt.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina