Leiðbeiningar fyrir sjálfsafgreiðslukerfi framhaldsskóla í FRAMHSK

Breytt Tue, 23 Apr kl 9:15 AM

Sjálfsafgreiðslukerfið er veflægt kerfi sem Landskerfið hefur þróað fyrir útlán hjá framhaldsskólum. Best er að hafa sér tölvu fyrir sjálfsafgreiðsluna.

 

EFNISYFIRLIT


 

Mikilvægir punktar um kerfið: 

 

    - Öll auðkenni virka, kennitölur, kortanúmer og gervikennitölur.

 

    - Það er ekki hægt að skila í kerfinu.

 

    - Það er hægt að skanna inn fleiri en eina bók í einu.

  

- Það er hægt að læsa kerfinu þannig að aðeins þurfi að nota skanna en ekki mús og lyklaborð.  Þetta hentar fyrst og fremst grunnskólum, en einnig er hægt að nota kerfið samhliða Gegni.

 

- Aðeins þarf að stilla kerfið einu sinni og það er þá í gangi þangað til slökkt er á því. Eftir uppfærslur á kerfinu, vafra eða stýrikerfi gæti þurft að endurstilla. Uppfærslur eru tilkynntar jafnóðum og þær eru gerðar.


- Til þess að komast í stillingar kerfisins þegar búið er að virkja kerfið, sláið inn "Stilla" í kennitölu reitinn. 

 

Vefslóðin fyrir sjálfsafgreiðslukerfið er:  https://api.landskerfi.is/framhsk  



Kerfið stillt: 


Þegar byrjað er að nota kerfið þarf að fara inn í stillingarnar (tannhjól) og stilla kerfið eins og hentar hverju bókasafni. Það eru margs konar stillingar í boði. 

   


Til þess að skrá sig inn í kerfið þarf að velja skólann þinnúr fellilista og slá inn lykilorð.

Lykilorðið er kóði safnsins með stórum stöfum, í dæminu hér MYRRR.

Hægt er að finna safnakóðana á þessari slóð: https://landskerfi.is/um-okkur/bokasofnin



Þegar búið er að smella á „Vista og næsta skref“ opnast síða fyrir stillingar í kerfinu.   

 

Hér er hægt að velja um 4 stillingar.  

Nota niðurteljara: Það er hægt að velja að vera með niðurtalningu og þá þarf að stilla hversu langur niðurtalningartíminn á að vera. Þegar niðurtalningin er búin þá endurhleður síðan sig yfir á byrjunarsíðu. Ef þið kjósið að nota ekki niðurteljara þarf að prenta út „hreinsa“ strikamerki og skanna það til þess að endurhlaða síðuna. 

 

Hljóð: Hægt er að velja hvort maður vilji að kerfið gefi frá sér hljóð. Ath. að þá þarf að vera kveikt á hljóði í tölvunni. Aðvörunarhljóðmerki heyrist ef villa kemur upp. Ef skönnun tókst þá kemur bjartara hljóð sem líkist hljóðinu sem skanninn gefur frá sér. 

 

Sýna útlán:  Valkvæmt er hvort útlánin hjá lánþegum sjáist, þá sést hvað viðkomandi er nú þegar með í láni. Ef ekki er hakað við þennan möguleika kemur aðeins upp bókin sem verið er að skanna inn. 

 

Heilskjár:  Ef skjárinn er stilltur á „Heilskjá“ þá er ekki hægt að komast úr honum nema að fara aftur í stillingar og taka hakið af „Heilskjá“.


 

Þegar búið er að stilla sjálfsafgreiðslukerfið skal velja „Vista og næsta skref“.


Í síðasta glugganum í stillingum þarf að vera hakað við „Virkja sjálfsafgreiðslu“ til þess að virkja kerfið í FRAMHSK



Smellið aftur á tannhjólið, efst til hægri,  til að loka stillingum og byrja að nota kerfið. Til þess að komast aftur í stillingar, sláið inn „Stilla“í kennitölu reitinn.




Svona er kerfið notað

Lánþegi slær inn kennitöluna sína :



Þá kemur upp nafn lánþega ef hann er skráður notandi á þessu safni.


Ef upp koma villur þarf að skoða þær og laga. 


Villuskilaboð:

  • „Þessi vél er bara ætluð framhaldsskólum.“  
  • „Villa kom upp. Prófaðu aftur.“ 


Þegar lánþegi hefur slegið inn kennitölu eða skannað inn strikamerkið sitt birtist ný síða þar sem stendur fullt nafn lánþega og hann beðinn um að skanna inn bókina sína.         



Ef ekki er stillt á „Sýna útlán“ er síðan auð.

Þegar búið er að skanna inn bókina koma upp skilaboðin „Skráning tókst, skannaðu næstu bók“.


Ef villa kemur upp þarf að laga villuna í Gegni. 

Villur sem geta komið upp í þessu skrefi eru: 

  • „Strikamerkið fannst ekki.“
  • „Eintakið er ekki til útláns.“
  • „Eintakið er skráð hjá öðrum lánþega.“ 
  • „Þú ert ekki með heimild. Sæktu aðstoð.“ 


Næsta skref er að smella á hreinsa takkann, láta niðurteljarann klára eða skanna „Hreinsa“ merkið til þess að fara til baka á upphafssíðuna. 

Þá er hægt að slá inn „Hreinsa“ í strikamerkjagluggann til þess að endurstilla kerfið og færa það yfir á byrjunarsíðu. 


„Hreinsa“ strikamerkið er aðgengilegt í viðhengi hér að neðan sem word skjal og á pdf formi. Hægt er að vinna meira með strikamerkið í wordskjalinu sé þess óskað.



Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina