2.b. Tímarit - að bæta við aukablaði

Breytt Tue, 23 Apr kl 9:43 AM

EFNISYFIRLIT



Inngangur

Ef búið er að útbúa áskrift en það kemur aukablað með áskriftinni sem var ekki í komuspánni, þá er hægt að bæta aukablaðinu við.

Þetta er gert með því að afrita tölublaðið sem aukablaðið kom með. Þetta þarf að gera áður en blöðin eru móttekin í „Taka á móti“ svo að aukablaðið fái allar þær upplýsingar sem það þarf að hafa, svo sem tengingu við pöntunarlínu og móttökudagsetningu.


Skref 1 - Finna rétta forðafærslu og skoða eintök

Byrja á að leita að forðafærslunni fyrir tímaritið

  • Muna að þrengja niðurstöður eftir sínu safni




Þegar búið er að finna réttu forðafærsluna skal smella á  „Skoða eintök“ 




Skref 2 - Þrengja eintakalistann eftir „Ekki móttekið“




Skref 3 - Afrita eintak og uppfæra lýsingu


Það þarf að passa að afrita einungis eintök sem hafa ekki verið móttekin. 

Í listanum þarf að finna tölublaðið sem aukablaðið fylgdi með. Svo skal velja „Afrita“ undir þrípunktunum. Mikilvægt er að athuga að það má ekki afrita hvaða eintak sem er.



Þegar smellt er á  „Afrita“ þá býr kerfið til auka eintak með nýju strikamerki. Það sem þarf að gera næst er að merkja eintakið sem aukablað.


Í reitnum  „Lýsing“ er hægt að bæta við lýsingu eins og við á, svo sem Aukablað eða Kökublað. Passa þarf að hafa lýsinguna ekki of langa. 

Ekki skal smella á hnappinn „Búa til“ þegar lýsingunni hefur verið breytt.



Ýta á „Vista“ efst á síðunni



Loka eintakalistanum




Skref 4 - Fara í „Taka á móti“


Nú hefur aukablaðið bæst við á lista með öðrum tölublöðum undir „Taka á móti“. .  


Næsta skref er að móttaka nýju eintökin þegar þau koma í hús. 

Sjá leiðbeiningar:  

  

        2. Tímarit - Að taka á móti nýju tölublaði













Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina