Að útbúa auka notendanafn þegar skannar lesa ekki strikamerki

Breytt Tue, 23 Apr kl 9:06 AM


Stundum eiga skannar erfitt með að lesa strikamerki sem að kerfið hefur útbúið fyrir nemendur sem eru ekki komnir með íslenskar kennitölur. 

Þá þarf að útbúa auka notendanafn sem hægt er að nota sem strikamerki tímabundið þar til að lánþeginn hefur fengið sína kennitölu frá þjóðskrá. 

Til þess að útbúa auka notendanafn er farið í „Auðkenni“ á lánþegaþjónustusíðunni.  



Smellt á  „Bæta við auðkenni" og þar er valið „Auka notendanafn".   

Það má alls ekki haka við  „Bæta við sem ytra".  




Auka notendanafnið þarf að vera einkvæmt í safnakjarnanum þannig að það er best að nota Mentor kennitöluna sem að nemandinn hefur fengið úthlutað. 

Svo skal smella á „Bæta við og loka“ og „Vista“ notendafærsluna.











Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina